Enginn er fullkominn - allir gera mistök

Mikilvægt er að kenna börnum að losna við sektarkennd, skömm og ásakanir eftir að hafa gert mistök. Að geta beðist afsökunar á mistökum og fundið út í sameiningu hvernig hægt er að læra af þeim bætir oft samskipti og þau geta orðið betri heldur en þau voru áður en mistökin voru gerð.​

Það er mannlegt að skjátlast og það er í lagi að mistakast því við getum leiðrétt mistökin og lært af þeim. Mistök eru í raun og veru hluti af því að læra.​