Í Seyðisfjarðarskóla er boðið upp á val á öllum skólastigum: yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Valgreinar eru skipulagðar í samræmi við ákvæði Aðalnámskrár grunnskóla og tengjast markmiðum skólans um fjölbreytt, skapandi og árangursríkt nám.
Valið er liður í því að:
- auka námsáhuga og virkni nemenda
- styðja við persónulegan styrkleika og áhugasvið
- efla félagsfærni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Sérstök áhersla er lögð á list- og verkgreinar þar sem markmiðið er að efla sköpunarkraft, fagurfræðilega upplifun og verklega færni nemenda.