Vitundar- og styrktarátakið BLÁR APRÍL fer fram í fimmta sinn og föstudaginn 6. apríl 2018

Klæðumst bláu í skólann og vinnuna föstudaginn 6. apríl og styðjum þannig börn með einhverfu. Tökum mikið af skemmtilegum myndum og deilum þeim á samfélagsmiðlum merktum #blarapril

Vitundar- og styrktarátakið BLÁR APRÍL fer fram í fimmta sinn og föstudaginn 6. apríl 2018 verður BLÁI DAGURINN haldinn hátíðlegur. Átakið miðar að því að fræða og upplýsa almenning um einhverfu og auka þannig skilning, viðurkenningu og samþykki á því sem er “út fyrir normið”. Því öll erum við einstök og höfum okkar styrkleika og veikleika og það á við um einhverfa eins og alla aðra. Einhverfa er alls konar! Því vonum við að sem flestir sýni lit með því að klæðast bláu á bláa daginn og styrkja einhverf börn.

Fögnum fjölbreytileikanum! Því lífið er blátt á mismunandi hátt!


Athugasemdir