Visit Our Town - lokaverkefni í ensku

Visit Our Town - lokaverkefni í ensku
Nemendur í 10. bekk luku nýverið skemmtilegu lokaverkefni í ensku þar sem allur árgangurinn vann saman að gerð kynningarmyndbands um Seyðisfjörð. Markmiðið var að kynna bæinn fyrir erlendum ferðamönnum og sýna það sem gerir hann einstakan.
Í myndbandinu segja nemendur frá áhugaverðum stöðum, náttúru, menningu og upplifunum sem Seyðisfjörður hefur upp á að bjóða. Verkefnið gaf þeim tækifæri til að æfa ensku í raunverulegu samhengi, vinna saman að sameiginlegu markmiði og nýta stafræna miðla á skapandi hátt.
Við bjóðum ykkur að horfa á afraksturinn og sjá Seyðisfjörð með augum nemenda okkar.
 
 
Ýtið hér!

Facebook