Sýning á myndverkum 1. bekkjar

Sýning á myndverkum 1. bekkjar

Í andyrir rauða skóla má nú líta verk sem nemendur í 1. bekk hafa unnið í myndmennt það sem af er önninni. Allir eru velkomnir að líta við, á skólatíma eða á opnunartíma bókasafnsins.

Nemendur á yngsta stigi fá þjálfun í notkun mismunandi listmiðla og tækni auk þess sem þau læra grunn atriði í lita- og formfræði og myndbyggingu. Áhersla er lögð á leik og verkefnavinnu með það markmið að nemendur öðlast færni til að nota mismunandi efnivið, kynnist skapandi vinnubrögðum og efli sjálfstraust sitt. (https://seydisfjardarskoli.sfk.is/is/listadeild/nam)

Í þeim verkum sem má sjá í andyrinu höfum við:

 

  • Velt fyrir okkur línum og formum, gert klippimyndir þar sem form mynda línur.
  • Skoðað fjallahringinn, þann sem hverfist um okkur og einnig bók Garðars Eymundssonar með teikningum af fjallahringnum, unnum sameiginlegan fjallahring, þrívítt pappírsverk.
  • Veltum fyrir okkur útlínum hluta og speiglun á formi, klippimyndir þar sem unnið var með tímaritamyndir og litað karton.
  • Unnið saman eina stóra mynd þar sem við kvöddum haustið og skoðuðum aðeins samhverfu og liti í leiðinni.

 

Þórunn Eymundardóttir

Myndmenntakennari


Athugasemdir