Stóra upplestrarkeppnin í Seyðisfjarðarskóla fór fram á sal föstudaginn 21. febrúar.

Stóra upplestrarkeppnin í Seyðisfjarðarskóla fór fram á sal föstudaginn 21. febrúar.  Nemendur  7. bekkjar lásu þar upp og stóðu sig með stakri prýði.  Dómnefnd var ekki öfundsverð af því að þurfa að gera upp á milli nemenda en komst að lokum að þeirri niðurstöðu að Gabríel Daníelsson og Eloise Rakel Rúnarsdóttir yrðu fulltrúar Seyðisfjarðarskóla á héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin í Egilsstaðaskóla þann 12. mars nk. Varamaður var valinn Bjarki Nóel Brynjarsson.

Til hamingju með flottan upplestur allir 7. bekkingar.


Athugasemdir