Stóra upplestrarkeppnin

Nemendur 7.bekkjar taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni.
Nemendur 7.bekkjar taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni.

Stóra upplestrarkeppnin fór fram á sal í dag, 23. febrúar.  Nemendur  7. bekkjar lásu þar upp og stóðu sig með stakri prýði. Dómnefnd var ekki öfundsverð af því að þurfa að gera upp á milli nemenda en komst að lokum að þeirri niðurstöðu að þau Friðrik Helgi Ernuson og Gígja Helgadóttir yrðu fulltrúar Seyðisfjarðarskóla á héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin í Egilsstaðaskóla þann 8. mars nk. 

Til hamingju með flottan upplestur allir 7. bekkingar. 


Athugasemdir