Skólaskemmtun

Skólaskemmtun grunnskóladeildar Seyðisfjarðarskóla var haldin miðvikudaginn 21. október. Að þessu sinni fluttu nemendur leikritið Ávaxtakörfuna sem fjallar í megindráttum um fjölbreytileika, vináttu og samskipti fólks. Ávextirnir geta táknað ólíka einstaklinga með mismunandi persónuleika, eiginleika og skoðanir. Þannig má draga fram að allir séu ólíkir en hafi samt allir sitt eigið gildi.

Sýningin tókst virkilega vel og áhorfendur tóku vel á móti nemendum með lófataki og blístri í fullum sal í Herðubreið.

Skólaskemmtun