Skemmtileg og fræðandi haustferð 9. bekkjar í Náttúruskólann

Miðvikudaginn 7. október fóru nemendur 9. bekkjar í áhugaverða dagsferð í Náttúruskólann í Hallormsstaðaskógi. Veðrið var fremur kalt en algjörlega kyrrt og heiðskýrt, sem skapaði flotta stemningu fyrir útiveruna.
Eftir komuna í skóginn fóru nemendur í skipulagt hópastarf. Eftir að hópastarfinu lauk með prýði var kveiktur eldur í eldstæðinu. Allir söfnuðust saman í kringum það, fengu sér hádegismat og nutu samverunnar í haustkyrrðinni.
Ferðin gekk í alla staði ljómandi vel og héldu nemendur heim á leið, bæði sáttir og saddir eftir frábæran dag.