Seyðisfjarðarskóli kynnir söngleikinn
FJALLKONAN
sem sýndur verður þriðjudaginn 17. apríl kl. 17.30 í félagsheimilinu Herðubreið
Handrit & leikmynd: Nemendur Seyðisfjarðarskóla
Leikstjórn: Halldóra Malin Pétursdóttir
Frumsamin tónlist: Benedikt Hermann Hermannson
Aðgangseyrir 1.000 kr. fyrir aðra en nemendur skólans
Undanfarnar vikur hafa nemendur og starfsfólk Seyðisfjarðarskóla unnið hörðum höndum að undirbúningi söngleiksins Fjallkonan. Í honum er fjallað um fjórar mögulegar útgáfur sögunnar um kuml sem fannst í Vestdal í Seyðisfirði árið 2004, en það er talið vera frá 10. öld.
Nemendur hafa samið handrit undir leiðsögn Halldóru Malinar Pétursdóttur auk kennara en Halldóra er einnig leikstjóri verksins. Tónlistin í verkinu er samin af Benedikt Hermanni Hermannsyni og flutt af nemendum í listadeild.
Söngleikurinn verður fluttur þriðjudaginn 17. apríl kl. 17.30 í bíósal félagsheimilisins Herðubreiðar.
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00