Óveður

Vegna slæmrar veðurspár á morgun viljum við minna á reglur okkar sem eru í gildi ef óveður skellur á.

Óveður  

Starfsfólk skólans mætir til vinnu hvernig sem viðrar nema Almannavarnanefnd hafi mælst til þess að fólk sé ekki á ferli. Telji foreldrar veður viðsjált, halda þeir börnum sínum heima og tilkynna það til skólans, því  þeirra er ábyrgðin.  Foreldrar skulu fylgja yngstu börnunum inn í skólann í slæmum veðrum og sækja þau er skóla lýkur. Sé veður viðsjált munu starfsmenn hafa samband við heimili þeirra nemenda sem ekki eru í skólanum og hafa ekki tilkynnt fjarvist. Tilkynntar fjarvistir vegna veðurs eru skráðar sem leyfi, aðrar sem óheimilar fjarvistir.


Athugasemdir