Myrkrastund

Leikskóladeildin hélt myrkrastund föstudaginn 3. nóv. þar sem nemendur og starfsfólk kom í svörtum eða dökkum fötum og með vasaljós að heiman. Morgunmaturinn var borðaður við kertaljós sem var mjög huggulegt og skemmtilegt. Einnig var leikið með ljós og skugga og nemendur prófuðu sig áfram með svartan, hvítan og dökka liti í þemarstarfi og vali þessa viku. 


Athugasemdir