Nemendur á miðstigi unnu að fjölbreyttum stöðvaverkefnum í náttúrufræði í tengslum við námsefnið Flóra og fána. Nemendum var skipt í þrjá hópa sem færðu sig á milli stöðva þar sem þau fengu að vinna með þróun, flokkun og aðlögun lífvera á skapandi og fjölbreyttan hátt.
Á einni stöðinni unnu nemendur með þróun og skyldleika lífvera. Þau fengu myndir af ólíkum lífverum og bjuggu til sitt eigið þróunartré. Þar þurftu þau að ræða saman um hvaða lífverur væru skyldar og velta fyrir sér hugmyndinni um sameiginlega forfeður.
Á annarri stöðinni var flokkun lífvera í aðalhlutverki. Nemendur fengu fjölbreytt safn lífvera og þurftu sjálf að ákveða hvernig hægt væri að flokka þær. Þau rökstuddu flokkunina og prófuðu síðan að flokka sömu lífverurnar aftur eftir öðrum einkennum. Þannig sáu þau að hægt er að skoða og flokka lífverur á mismunandi hátt.
Á þriðju stöðinni fengu nemendur svo að láta ímyndunaraflið njóta sín. Þau hönnuðu sína eigin lífveru sem þurfti að vera aðlöguð ákveðnu búsvæði. Nemendur þurftu að hugsa um hvaða eiginleikar myndu hjálpa lífverunni að lifa af við þær aðstæður sem þar ríkja og útskýra hvernig aðlögunin nýttist henni.
Stöðvavinnan vakti góðar umræður og gaf nemendum tækifæri til að hugsa, skapa, flokka, ræða og rökstyðja. Um leið þjálfuðust þau í samvinnu og í að beita þekkingu sinni á lífverum, náttúruvali og aðlögun á nýjan hátt.