Hrekkjavaka

Seyðisfjarðarskóli tekur þátt í Hrekkjavökugleðinni og Dögum myrkurs. Á morgun, fimmtudaginn 31. október, er búningadagur í skólanum þar sem öll eru hvött til að mæta í búning eða dökkum fötum. Á laugardaginn heldur nemendaráð, í samstarfi við foreldrafélögin, myrkraball í Herðubreið.
Gleðilega hrekkjavöku.