Heimsókn eldri borgara

Nemendur á Dvergasteini hafa mikið verið að spá í skipinu El Grillo sem sökk hér í Seyðisfirði. Því var tekið til þess ráðs að fá Jóa Sveinbjörns sem flestir þekkja, til að koma og fræða nemendur um El Grillo. Hann sagði þeim á skemmtilegan og heillandi hátt frá hernámstímanum og þegar El Grillo sökk. Það höfðu allir mjög gaman af að kynnast Jóa betur og þökkum við kærlega fyrir komuna.


Athugasemdir