Á morgun, miðvikudaginn 9. september, hefst verkefnið Göngum í skólann og er þetta í tuttugasta sinn sem það fer fram. Verkefninu lýkur formlega miðvikudaginn 7. október með alþjóðlega Göngum í skólann deginum.
Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla. Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í verkefninu með einum eða öðrum hætti.
Við hvetjum nemendur til að taka þátt með því að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta og stuðla þannig að heilbrigðara og öruggara skólaumhverfi.