Göngum í skólann

Göngum í skólann (gongumiskolann.is)

 

Nú styttist í að verkefnið Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) hefjist en það verður sett í
sautjánda sinn þann 6. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í
skólann deginum miðvikudaginn 4. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka
sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann
með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt, fyrsta árið voru
þátttökuskólarnir 26 en alls skráðu 84 skólar sig til leiks árið 2022. 


Athugasemdir