Rithöfundurinn Rán Flygenring heimsækir Seyðisfjörð og býður upp á skapandi fjölskyldusmiðju í tengslum við útgáfu barnabókarinnar Tjörnin.
Smiðja fer fram í Bókasafni Seyðisfjarðar föstudaginn 22. nóvember kl. 14:00 (dagurinn er starfsdagur í skólum Múlaþings).
Tjörnin er hyldjúp og töfrandi saga sem fjallar um vinina Fífu og Spóa sem rekast á ókunna dæld í miðjum garðinum sínum sem verður til þess að allt breytist. Hélukeppir og gljáfætlur, óstýrilát selshamsstytta, dularfullt draugabarn og bíræfnir nágrannar eru bara brot af þeim undrum sem koma upp úr kafinu þegar vinirnir munda skóflurnar.
Í smiðjunni fá þátttakendur að kynnast þeim töfraheimi sem lífríki tjarnarinnar er og tækifæri til að skapa sínar eigin lífverur og vistkerfi.
Rán Flygenring er margverðlaunaður höfundur og teiknari. Hún hefur margsinnis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og árið 2023 fékk hún Norðurlandaráðsverðlaunin fyrir bókina Eldgos.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin!
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 11:45