Mánudaginn 27. nóv. og föstudaginn 8. des. fóru tveir af kennurum leikskóladeildar á TRAS námskeið í Austurbrú. TRAS (n: Tidlig registrering af språkudvikling), er skráningarlisti til notkunar fyrir leikskólakennara til að fylgjast með máltöku tveggja til fimm ára barna. Listinn er upprunalega kominn frá sérfræðingum við norskan háskóla og sérkennslustofnanir og er notkun hans nú orðin útbreidd á Norðurlöndum. Góður málþroski skiptir miklu máli fyrir andlegan þroska barna, félagslega líðan og seinni lestrartileinkun. Með TRAS skráningunni er hægt að skima eftir frávikum í mál- og félagsþroska barnanna með fyrirbyggjandi íhlutun í huga. Skráningakerfið hefur verið notað á Sólvöllum síðan 2013. Námskeiðið er áhugavert og bæði nauðsynlegt og gaman að hitt kollega af öllu Austurlandi.
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00