Klæðumst bláu í skólann og vinnuna föstudaginn 6. apríl og styðjum þannig börn með einhverfu. Tökum mikið af skemmtilegum myndum og deilum þeim á samfélagsmiðlum merktum #blarapril
Vitundar- og styrktarátakið BLÁR APRÍL fer fram í fimmta sinn og föstudaginn 6. apríl 2018 verður BLÁI DAGURINN haldinn hátíðlegur. Átakið miðar að því að fræða og upplýsa almenning um einhverfu og auka þannig skilning, viðurkenningu og samþykki á því sem er “út fyrir normið”. Því öll erum við einstök og höfum okkar styrkleika og veikleika og það á við um einhverfa eins og alla aðra. Einhverfa er alls konar! Því vonum við að sem flestir sýni lit með því að klæðast bláu á bláa daginn og styrkja einhverf börn.
Fögnum fjölbreytileikanum! Því lífið er blátt á mismunandi hátt!
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00