Nemendurnir byrjuðu á að gera stafina sína eða nafn sitt með tvöföldum stöfum. Inn í stafina settu þeir munstur sem kallast Zentangle munstur. Til að persónugera möppurnar sínar enn frekar skreyttu þau möppurnar að aftan með að lágmarki 2 lógóum að eigin vali.
Það var ótrúlega gaman að sjá hve hugmyndaflugið tókst á loft hjá þeim í munsturgerðinni.
Nemendurnir fengu góða æfingu í að takast á við fínhreyfingar, hugmyndaflug, sjálfsskoðun, sjálfstæð vinnubrögð og góðan frágang við samsetningu möppunnar.
Zentangle munstur er ekki svo ósvipað gamla góða símakrotinu. Þegar fólk talar í síma þá á það til að krota á blað, oft án þess að spá nokkuð í því.
Zentangle munsturgerð er óendanleg, frá einföldustu línum og út í hið óendanlega. Munsturgerðin byggist á samblandi punkta, lína, tákna, hringa og boga sem mynda skipulagða heild. Einfaldar endurtekningar á smáum svæðum sem virðast verulega flóknar á heildina litið.
Zentangle þýðir Hugleiðsluflækja, í tímunum fór ekki á milli mála að þar væri mikil hugleiðsla í gangi við munsturgerðina, friður, einbeitning og afslappaðar samræður.
Kveðja,
Sandra María.
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00