Stóra upplestrarkeppnin fór fram á sal í dag, 23. febrúar. Nemendur 7. bekkjar lásu þar upp og stóðu sig með stakri prýði. Dómnefnd var ekki öfundsverð af því að þurfa að gera upp á milli nemenda en komst að lokum að þeirri niðurstöðu að þau Friðrik Helgi Ernuson og Gígja Helgadóttir yrðu fulltrúar Seyðisfjarðarskóla á héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin í Egilsstaðaskóla þann 8. mars nk.
Til hamingju með flottan upplestur allir 7. bekkingar.
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 12:00