Sönglota

Síðustu tvær vikur hefur Andrea Gylfadóttir kennt söng hjá okkur í Tónlistarskóla Seyðisfjarðar, í afleysingum fyrir Kristjönu Stefánsdóttur, sem kennir söng í tveggja vikna lotum, þrisvar sinnum á skólaári.
Við þökkum Andreu kærlega fyrir tímann með okkur og erum þakklát fyrir að stórsöngkonur Íslands leggi leið sína til okkar með svo reglulegu millibili.
Kristjana Stefáns er væntanleg til okkar eftir áramót, nánari dagsetningar verða kynntar bráðlega.