Skólaskemmtun Seyðisfjarðarskóla

Emil í Kattholti settur á svið!
Þessa dagana er undirbúningur fyrir skólaskemmtun að ná hámarki. Nemendur eru á fullu við að æfa leikritið, syngja söngvana og smíða leikmyndina þar sem leikritið um prakkarann Emil í Kattholti verður sett á svið í næstu viku.
Við hvetjum alla foreldra, ömmur og afa, frændur, frænkur og vini til að fjölmenna. Sýningin fer fram miðvikudaginn 18. mars klukkan 17:00 í hátíðarsal Herðubreiðar.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!