Nemendur á unglingastigi unnu ljósmyndaverkefni í samfélagsfræði sem fólst í því að nemendur völdu gamlar ljósmyndir af Seyðisfirði af vefnum
Sarpur.is og tóku nýja mynd í dag frá sama / svipuðu sjónarhorni. Myndirnar voru loks allar settar saman í heildstætt gallerý.
Með því skapast skýr og áhugaverður samanburður sem sýnir hvernig bærinn hefur breyst og þróast í gegnum árin. Verkefnið hjálpar nemendum að tengja saman sögu, umhverfi og samfélag á lifandi og sjónrænan hátt.