Um þessar mundir erum við að prófa okkur áfram með að nota Osmo í kennslu með nemendum á yngsta stigi. Osmo er kennslutæki sem tengir saman spjaldtölvu og snertanleg spil og kubba. Nemendur vinna því bæði á borði og í spjaldtölvu þannig að nám og leikur fléttast saman.
Markmiðið með notkun Osmo er að styðja við:
- talnaskilning og stærðfræði
- forritunarhugsun og rökhugsun
- sköpun, ímyndunarafl og samvinnu
Við erum að prófa eftirfarandi Osmo-leiki:
Pizza Co. Nemendur reka pizzastað, taka á móti pöntunum, velja rétt álegg og reikna út greiðslur og afgang. Þannig æfa þau talnaskilning, einfaldan reikning og lausnaleit.
Detective Agency Nemendur fylgja vísbendingum, leita að atriðum á kortum og myndum og reyna að leysa mál. Þar með þjálfa þau ensku, einbeitingu, athugun og rökhugsun, auk þess að kynnast ólíkum löndum og menningu.
Coding Nemendur nota sérstaka kubba á borðinu til að forrita persónu í leiknum. Með því læra þau grunnatriði forritunar, svo sem röð skipana, mynstur og endurtekningar. Þetta styrkir rökhugsun, úthald og hæfni til að prófa, leiðrétta og reyna aftur.
Creative-leikir (t.d. teiknileikir) Nemendur teikna á blað en sjá teikningarnar lifna við á skjánum. Þannig æfa þau fínhreyfingar, rýmisskynjun og skapandi tjáningu og fá að upplifa að hugmyndir þeirra verði að raunveruleika í leiknum.
Numbers Nemendur nota talnaspjöld og kubba til að leysa talnaþrautir í spjaldtölvunni. Þau vinna með talningu, magn og einfalda samlagningu og frádrátt. Leikurinn hjálpar til við að byggja upp öruggan talnaskilning og jákvæða upplifun af stærðfræði.
Nemendur sýna mikinn áhuga á verkefnunum og að læra í gegnum leik.