Olweusardagurinn

Seyðisfjarðarskóli er Olweusarskóli og því héldu leik- og grunnskóladeild upp á baráttudag gegn einelti sem er haldinn árlega  8.nóvember. Tilgangur dagsins er m.a. að vekja athygli á mikilvægi góðra samskipta í og utan skóla - alla daga.

 

Í leikskóladeild var eineltishringurinn kynntur og  ræddur og farið í leiki sem stuðla að góðum samskiptum og vináttu. Í grunnskóladeild kynntu nemendur eigin verkefni tengd eineltisvinnu á sal um morguninn.  Meðal annars hafa þeir sjálfir skilgreint hvað það er að vera góður vinur og hvernig koma má í veg fyrir einelti. Sumir endurhönnuðu eineltishringinn og fóru með í ýmis fyrirtæki og vinnustaði í bænum til að vekja athygli á baráttunni gegn einelti. Nemendur í 1. og 2. bekk gáfu samnemendum sínum og starfsfólki  "græna karlinn" sem þeir höfðu klippt út til að hengja upp í kennslurýmum skólans. 


Athugasemdir