Nótan

Nótan var haldin síðastliðinn laugardag, í Miklagarði á Vopnafirði. 18 atriði voru í heild sinni frá sex af þeim sjö tónlistarskólum sem starfandi eru á Austurlandi. Tvær tónlistarkonur fóru frá Seyðisfirði, þær Gunnhildur Jara og Ársól Heiða, en þær fluttu saman frumsamið lag hljómsveitarinnar Skjálftanna, auk þess sem Gunnhildur flutti frumsamið lag sitt Annar Séns. Þær stóðu sig svakalega vel og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.