Múlaleikar á Seyðisfirði

Múlaleikar á Seyðisfirði
Föstudaginn 15. maí fengum við um 70 hressa 3. bekkinga úr Múlaþingi í heimsókn til okkar í Seyðisfjarðarskóla.
Dagurinn hófst á torginu þar sem allir fengu ávexti og Siggi kennari vakti mikla athygli með dularfullri draugasögu um vélstjórann frá Aberdeen.
Hópurinn fræddist um sögu bæjarins og skoðaði gamla skóla, giskuðu á merkingu skúlptúrsins á torginu og gengu að lóninu þar sem krakkarnir sáu regnbogalistaverk og steinabát. Arna sagði frá skriðunni sem tók mörg hús og sáu krakkarnir sárið í fjallinu. Margir prófuðu að klifra upp á stóra skriðusteina og sumir hlupu tvisvar upp að Búðarárfossi.
Eftir að hafa fundið sjávarlyktina í smábátahöfninni og gætt sér á döðlum var haldið í garðinn hjá kirkjunni þar sem nemendur fengu að heyra söguna af Dvergasteini. Að lokum var hópmyndataka í regnbogagötunni og í kjölfarið grill og gleði á leikvellinum. Það var frábært að sjá krakkana kynnast nemendum úr öðrum skólum í sveitarfélaginu í gegnum leikinn. Dagurinn endaði svo á ljúffengum frostpinna áður en haldið var heim á leið.