Laxdæla

Hefð er fyrir því að nemendur á unglingastigi lesa eina Íslendingasögu á skólaárinu og í ár lásu nemendur Laxdælu.
Í lokaverkefni þeirra fengu nemendur úthlutað einum atburði úr sögunni og skrifuðu um hann frétt. Úr varð heildstætt fréttabréf sem segir frá helstu atburðum sögunnar í tímaröð. Fréttatilkynningar nemenda eru bæði skemmtilegar og upplýsandi, og gefa góða mynd af þessari mögnuðu Íslendingasögu.