Landslag og hljóðmyndir

Markmið smiðjunnar var að nemendur lærðu um hljóð og hljóðmyndir í gegnum samtal, fyrirlestur, leik og bókverkagerð. Kannað var hvernig hægt væri að ímynda sér hljóð sem mynd og samband hljóðmynda við náttúruna og nærumhverfi okkar. Skoðað var hvernig hljóð kastast til í rými með blöðrugjörningi og var hljóðskúlptúrinn Tvísöngur nýttur til þess. Ýmsum hugmyndum um hljóð var velt upp í samtali eins og t.d. Hvernig ferðast hljóðið? Hvað er hljóðmynd? Skiptir rýmið máli í tengslum við hljóð og hljómburð? Getum við fundið hliðstæður í myndum af náttúrunni og hljóðbylgjum?

Einnig fengu nemendur leiðsögn um sýninguna Jaðaráhrif í sýningarsal Skaftfells en sú sýning samanstóð af verkum þriggja listamann sem unnu verkin sín út frá vistfræði og fengu nemendur að kynnast hugtakinu og innsýn inn í niðurstöður listamannanna. 


Athugasemdir