Kristín Sunna fulltrúi Seyðisfjarðarskóla í Stóru upplestrarkeppninni

Kristín Sunna fulltrúi Seyðisfjarðarskóla í Stóru upplestrarkeppninni

Þriðjudaginn 3. mars fór fram Stóra upplestrarkeppnin í Seyðisfjarðarskóla. Allir sex nemendur 7. bekkjar tóku þátt og stóðu sig frábærlega. Þau hafa verið að undirbúa sig og þjálfa síðan í nóvember og hafa meðal annars farið í heimsókn á Fossahlíð og flutta þar kynningu um Matthías Jochumsson og ljóð eftir hann. Á litlu jólunum lásu þau söguna um Litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir H.C. Andersen fyrir allan skólann.

Í keppninni flutti hvert þeirra stuttan kafla úr bók Hjalta Halldórssonar, Draumurinn. Þetta er saga, sögð í fyrstu persónu, um stelpu sem er algjör hetja í fótbolta og spilar með stóra bróður sínum í liði. En bókin snýst um margt annað en fótbolta s.s. fyrirmyndir, væntingar og fordóma. Auk þess lásu keppendur tvö ljóð sem þau höfðu valið af kostgæfni.

 

Anna Margrét Ólafsdóttir og Sigga Lund skipuðu dómnefndina, eins og í fyrra, en þær fengu það krefjandi verkefni að meta hreint frábæru frammistöðu nemendanna. Kristín Sunna Vilhjálmsdóttir var valin til að vera fulltrúi skólans í Héraðskeppninni sem fer fram á Egilsstöðum, mánudaginn 16. mars. Við óskum henni til hamingju og óskum henni góðs gengis í Héraðskeppninni.