Á morgun, föstudaginn 29. september, verður gulur dagur í grunnskóladeildinni. Nemendur og starfsfólk er hvatt til að mæta í gulum fötum eða með eitthvað gult á sér til að vekja athygli á Gulum september. Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Nánari upplýsingar á Er allt í gulu? - Geðhjálp (gedhjalp.is)