Miðvikudaginn 2. september fóru nemendur og kennarar á unglingastigi í gönguferð til Loðmundarfjarðar. Það var ánægjulegt að geta farið í ár þar sem gangan féll niður í fyrra vegna veðurs.
Við fengum mjög gott gönguveður og um kvöldið grilluðu krakkarnir hamborgara. Að lokinni kvöldvöku hópuðumst við öll saman hjá skálavörðunum og áttum þar aðra skemmtilega stund við varðeldinn þeirra.
Morguninn eftir steiktu krakkarnir lummur. Þegar búið var að ganga frá og þrífa allt hátt og lágt var orðið stutt í rútuna, sem kom um kl. 11:30 ásamt trússbílnum.
Heimferðin var þó ekki alveg viðburðalaus. Rútan festist í sandhlassi sem hafði verið sturtað á veginn eftir að hún fór þar um fyrr um morguninn. Með svona traustan bílstjóra var það þó ekkert mál.