Gönguferð miðstigs

Miðvikudaginn 2. September var göngudagur í Seyðisfjarðarskóla.
Miðstigið byrjaði á að ganga upp í Fjörð og skoða landnámsskálann og nýju hleðsluna þar og setbekkina í skálnum. Siggi gat sagt okkur frá ýmsu um uppgröftinn og það sem þar fannst, enda starfaði hann við gröftinn nokkur sumur. Við gegnum líka aðeins upp á varnargarðinn til að njóta útsýnisins þaðan út fjörðinn.
Eftir þetta lá leiðin eftir nýja göngustígnum inn í Fjarðarsel þar sem við fengum okkur nesti. Þá gengum við lengra upp með ánni, áleiðis að Gufufossi, en drifum þó ekki alveg alla leið því við vorum svo sólgin í bústnu bláberin sem voru meðfram allri gönguleiðinni.
Við gengum svo leiðina í fjallshlíðinni til baka.
Frábær dagur og öll miðstigsbörn svo dugleg og glöð.

Myndir