Fréttir af starfsdegi leikskóladeildar

 Öðrum starfsdegi vetrarins, föstud. 8. sept. eyddu kennarar leikskóladeildarinnar á Haustþingi leikskóla á Austurlandi sem haldið var á Norðfirði. Boðið var upp á tvo fyrirlestra, annars vegar Lifðu betur hjá Orra Smárasyni, sálfræðingi og Sigurði Ólafssyni, ráðgjafa. Þeir fjölluðu um Hugræna atferlismeðferð í daglegu lífi fólks. Hins vegar var boðið upp á fyrirlesturinn Húrra, það er mánudagur! með Hrönn Grímsdóttur, þar fjallar hún um núvitund og bættan starfsanda á vinnustöðum.  Að þingi loknu var kennurum boðið að skoða nýja leikskólann Eyrarvelli á Norðfirði. Þar var áhugavert að skoða sig um, hitta samstarfsfólk á Austulandi og fá hugmyndir. Þingið var áhugavert og gagnlegt og nýta kennarar tækifærið til að hitta samstarfsfólk af Austurlandi, koma saman og hafa gaman.

 


Athugasemdir