Frábær ferð unglinganna á LEGO-keppnina í Reykjavík

Unglingarnir okkar fóru nýlega til Reykjavíkur til að taka þátt í hinni árlegu FIRST LEGO League keppni. Þau stóðu sig alveg frábærlega á mótinu og lögðu sig öll fram, þótt þau kæmu ekki heim með verðlaun í þetta skiptið.

Að sögn skipuleggjenda var keppnin óvenju hörð og jöfn í ár. Það sást best á því að nánast öll liðin voru einungis um tíu prósentustigum frá sigurvegaranum. Okkar krakkar sýndu mikla hæfni, útsjónarsemi og samvinnu í öllum þrautum dagsins og gátu sannarlega verið stolt af sínum árangri.

Ferðin snerist þó ekki eingöngu um keppnina sjálfa. Unglingarnir skemmtu sig konunglega í höfuðborginni og nutu þess að gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau fóru meðal annars í bíó og heimsóttu FlyOver Iceland, svo eitthvað væri nefnt. Ferðin styrkti liðsandann og skapaði margar góðar minningar.

Þessi keppni markaði ákveðin tímamót, því þetta var síðasta FIRST LEGO League keppnin sem haldin var. Samstarfið á milli FIRST og LEGO slitnaði og lauk þar með löngum og farsælum kafla. Í staðinn tekur við ný og spennandi keppni sem kallaðist World Robot Olympic (WRO), en meira um hana síðar.

First Lego League