Frá skólaselinu

Krakkarnir í skólaselinu fundu dauðan mávsunga síðastliðinn mánudag og það kom ekki annað til greina en að jarða hann.
Það var því haldin jarðarför með pompi og prakt þar sem Illugi var útfararstjóri. Allir hjálpuðust að við að moka holuna og týna blóm.