Spennandi stærðfræðikennsla: Er allur heimurinn gerður úr þríhyrningum?
Við vekjum athygli á mjög áhugaverðri grein eftir Unni okkar Óskarsdóttur sem birtist í tímariti Flatarmáls – málgagni samtaka stærðfræðikennara. Pistill hennar ber titilinn: „Er bara allur heimurinn gerður úr þríhyrningum?“ og lýsir með frábærum hætti þeirri spennandi stærðfræðikennslu sem fer fram í 1. og 2. bekk hjá henni.
Í pistlinum segir frá skemmtilegu verkefni þar sem nemendur kynnast ýmsum rúmfræðiformum. Mikill áhugi og forvitni barnanna verður til þess að einfalt námsverkefni þróast yfir í víðfeðmt og lifandi rannsóknarverkefni. Börnin spyrja mikilvægra spurninga, rannsaka umhverfi sitt og uppgötva stærðfræðina allt í kringum sig í leik og starfi.
Er bara allur heimurinn gerður úr þríhyrningum? – FLATARMÁL