Er allt í gulu? Sýnum samstöðu á gulum degi!
Á fimmtudaginn, 10. september, er gulur dagur í grunnskóladeildinni. Við hvetjum alla nemendur og starfsfólk til að mæta í gulum fötum eða með eitthvað gult á sér.
Með þessu vekjum við athygli á Gulum september en það er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Guli liturinn táknar von, kærleika og umhyggju. Slagorð átaksins er „Er allt í gulu?“ og minnir okkur á að spyrja hvert annað hvernig okkur líður og sýna samkennd.
Við viljum sýna börnunum að það er mikilvægt að hlúa að geðheilsunni og að það er alltaf hjálp að fá.
Sýnum samstöðu, klæðumst gulu og eigum góðan dag saman!