Ævintýralegur dagur hjá 3. bekk í Náttúruskólanum. Nemendur í 3. bekk áttu frábæran og fræðandi dag þegar þeir heimsóttu Náttúruskólann í Blöndalsbúð í Einarsstaðaskógi. Eftir að hafa gengið um skóginn var byrjað á því að fá sér hressandi ávaxtanesti undir berum himni. Dagskráin var fjölbreytt og lærdómsrík en nemendur fóru á milli mismunandi stöðva í hópum.
Skógarfræðsla: Hópurinn fór með Bjarka um skóginn þar sem nemendur lærðu mikið um tré, sveppi og ber.
Eldmennt: Hjá Hildi fengu nemendur að spreyta sig á því að kveikja eld og læra um öryggi við eldstaðinn.
Listasmiðja: Hjá Írisi var sköpunargleðin í fyrirrúmi þar sem börnin máluðu, unnu með leir og prentuðu falleg laufblöð og plöntur á dúk.
Eftir skemmtilega dagskrá var boðið upp á ljúffengan hádegismat þar sem allir fengu útieldaðar tortillur með kjúklingi, nachos-snakk og dýrindis eldpopp. Í lok dagsins kom svo töfrastund þegar börnin fengu að fylgjast með litríkum og spennandi galdri í eldinum.
Það voru ánægðir, kátir og margs vísari nemendur sem sneru aftur heim eftir frábæran dag í skóginum!
Suðurgata 4, 710 Seyðisfjörður
Sími á skrifstofu: 470 2320
Sími á leikskóladeild 470 2330
Netfang: seydisfjardarskoli@mulathing.is
Kt: 660220-1350
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 - 11:45