
Á Degi íslenskrar tungu, mánudaginn 16. nóvember, heimsóttu nemendur í 7. bekk Seyðisfjarðarskóla hjúkrunarheimilið Fossahlíð. Tilefni heimsóknarinnar var að lesa upp valda kafla úr bók Kristínar Steinsdóttur,
Sól sest að morgni, fyrir íbúa og starfsfólk heimilisins.
Kristín er fædd og uppalin á Seyðisfirði og í bókinni dregur hún upp mynd af uppvaxtarárum sínum í bænum í gegnum persónuleg minningabrot. Upplesturinn vakti mikla ánægju meðal áheyrenda sem nutu þess að hlýða á frásagnir tengdar sögu og mannlífi staðarins.
Heimsóknin markar jafnframt upphaf undirbúnings nemenda fyrir þátttöku í Stóru upplestrarkeppninni. Það hefur um árabil verið föst hefð í Seyðisfjarðarskóla að hefja ræktunartímabilið með heimsókn í Fossahlíð, þar sem nemendur fá tækifæri til að æfa upplestur sinn fyrir þakkláta áheyrendur.
Í vetur eru fjórir nemendur í 7. bekk, þau Albert Ingi, Andrea, Margrét Móeiður og Úlfrún Ugla.
Þau stóðu sig öll með stakri prýði og sýndu bæði öryggi og góða framkomu við upplesturinn.