Betri aðstaða fyrir unglingana í frímínútum

Við vinnum nú að því að bæta aðstöðu unglinganna okkar í frímínútum. Þegar skólinn varð símalaus í haust fengum við hugmyndir frá krökkunum að skemmtilegri afþreyingu og nú prýðir nýtt og glæsilegt píluspjald aðstöðuna þeirra. Fleira spennandi er á leiðinni og væntanlegt fyrir jólin.